Rauða nefið Heims foreldrar UNICEF Myndir Spurt & svarað Styrktaraðilar

Gerast heimsforeldri
Hvað er UNICEF


 

 

Slideshow image Í 60 ár hefur Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna eða UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í yfir 150 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára.

UNICEF útvegar flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringarverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi.

UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna.

Við leggjum áherslu á að fjárstuðningurinn skili sér beint til þeirra barna sem á honum þurfa að halda. Þess vegna er mjög lítil yfirbygging á starfseminni en til marks um það eru 86% starfsliðs okkar staðsett í þróunarlöndunum sjálfum.

Í gegnum árin hafa samtökin skapað sér traust sem óhlutdrægur aðili sem vinnur með stjórnvöldum í hverju landi fyrir sig, óháð trúarbrögðum og stjórnmálastefnu. Þannig eru öll börn okkar börn.