
Rauða nefið í ár er extra stórt því við þurfum að gera enn meira grín til að safna enn meiri pening. Ef þú kaupir rautt nef styrkir þú verkefni UNICEF fyrir börn um allan heim.
Nefið kostar 800 krónur og fæst í ...


Þegar þú ert búinn að setja upp rauða nefið þá er um að gera að grína í vinnufélögum, fjölskyldu og vinum og safna kannski smá pening fyrir Barnahjálpina. Við erum búin að viða að okkur fullt af hugmyndum um grín og glens, gæti ekki verið auðveldara!
Hugmyndabanki fyrir áheitasöfnun
Vissir þú að ...
- það eru 12.386.000 hundraðkrónupeningar í umferð á Íslandi ... og við viljum fá þá alla (eða allavega mjög mjög mjög marga!)
Hvað geri ég eftir að hafa fengið alla þessa hundraðkalla frá vinnufélögunum?
Farðu með þá í bankann og biddu um að láta setja þá á söfnunarreikning UNICEF:
515-26-102020
kt. 481203-2950
Sagan á bakvið Dag rauða nefsins
Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku góðgerðarsamtökunum Comic Relief, sem héldu fyrsta Dag rauða nefsins (e. Red Nose Day) árið 1988 í þeim tilgangi að safna fé til þurfandi barna í Afríku. Síðan þá hefur Dagur rauða nefsins verið haldinn annað hvert ár og hefur hann nú fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerðarviðburðum Bretlands.
Dagurinn gengur út á að beita kímni og hlátri til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna í fátækari löndum þessa heims og fá þannig fólk til að leggja sitt af mörkum.
Á Íslandi verður Dagur rauða nefsins haldinn í annað sinn laugardaginn 4. desember 2009. Það verður mikið um grín og glens í aðdraganda Dags rauða nefsins. Einstaklingar eru hvattir til að gerast heimsforeldrar, kaupa stóru rauðu nefin og safna áheitum.
Bylgjan mun hita upp fyrir stóra daginn og þá geta vinnustaðir, fyrirtæki og stofnanir tekið þátt í almennu fjöri, glensi og gríni. Hægt er að nálgast allskyns fjáröflunarhugmyndir, grín og glens fyrir einstaklinga og fyrirtækja hér á síðunni.
Að kvöldi föstudags 4. desember ætlar einvalalið leikara, skemmtikrafta og grínista að skemmta landanum í fjögurra klukkustunda löngum grínþætti á Stöð 2.
Hugmyndin að baki Degi rauða nefsins er að gleðjast og gleðja aðra og þá klikka rauðu nefin aldrei. En um leið og fólk kaupir rautt nef er það líka að leggja sitt af mörkum til hjálparstarfs UNICEF og gleður þannig börn í Afríku sem búa við mikla fátækt og neyð.







