UNICEF trúir því að börn þurfi vernd, öryggi og umhyggju. Við erum staðráðin í að veita hverju barni þá barnæsku sem það á skilið, þ.e. tækifæri til að leika sér, læra og láta sig dreyma. Á hverjum degi snertum við líf bágstaddra barna í yfir 150 löndum.
Við veitum börnum menntun, heilsugæslu og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og sjúkdómum. Þegar neyð skellur á af völdum náttúruhamfara eða stríðs erum við ein af þeim fyrstu til að veita hjálp og björgum þannig lífi þúsunda barna.
Með því að gerast heimsforeldri UNICEF tekur þú þátt í þessum mikilvægu verkefnum með okkur og færir börnum um allan heim gleði og von.
Sem heimsforeldri greiðir þú 1000 krónur eða meira á mánuði. Það munar um hvert framlag og þú getur verið viss um að framlag þitt skilar sér til barna sem þurfa á því að halda.
![]()
Fyrir 1000 kr. getur þú...
- veitt 35 börnum blýant og námsbók,
- veitt 18 börnum skrifblokk og átta vaxliti í pakka,
- keypt 24 sippubönd,
- fjárfest í kæliboxi til að geyma bóluefni,
- bólusett 72 börn gegn mislingum,
- veitt 235 skammta af saltupplausn,
- fengið eitt moskító-flugnanet sem allt að 4-5 börn geta sofið undir,
- keypt 1000 vatnshreinsitöflur, en hver tafla hreinsar 4-5 lítra af vatni,
- prófað 15 börn (eldri en 18 mánaða) fyrir HIV/alnæmi,
- veitt fjórum börnum ullarteppi á hamfara- og neyðarsvæðum,
- keypt 15 pakka af næringaríku kexi fyrir vannærð börn.








