Rauða nefið Heims foreldrar UNICEF Myndir Spurt & svarað Styrktaraðilar
Gerast Heimsforeldri
Fréttir


30.11.2006

BaggalúturBylgjan brosir með UNICEF

Bylgjan ætlar að brosa með UNICEF á Degi rauða nefsins 1. desember og verður með brandara-átak fyrir fyrirtæki og vinnustaði. Þetta er tækifæri fyrirtækja til að leggja átakinu lið og styrkja bágstödd börn víða um heim. Söfunin á Bylgjunni gengur þannig fyrir sig að einstaklingar og fyrirtæki geta keypt brandara á Bylgjunni föstudaginn 1.desember og mun allt andvirði renna til barnahjálpar UNICEF. Bylgjan og UNICEF hvetja alla til að taka þátt og lyfta vinnuandanum í mesta skammdeginu um leið og góðu málefni er lagt lið.

Fjáröflunarátak

Um er að ræða brandara- og fjáröflunarátak þar sem einstaklingar-, fyrirtæki og vinnustaðir senda inn einn brandara sem yrði spilaður þangað til annað fyrirtæki yfirbýður hann til að fá sinn brandara í loftið. Það er annað hvort hægt að kaupa leikinn brandara eða hringja inn og segja eigin brandara í símann.

Hvernig fer ég að?

Hringir í síma 567-11 11 og skráir þig til leiks með fyrirfram völdum brandara.

Skráning fer fram á brandaranum þínum - hvort sem um ræðir leikinn brandara eða eigin brandara.

Við bendum einnig á að ...

Fjölmörg fyrirtæki hafa tekið vel í átakið og kaupa rauð nef í hundraða tali á starfsmenn sína. Það ætti því að vera glatt á hjalla á mörgum vinnustöðum á föstudaginn eða í jólagleðinni. Við hvetjum enn fleiri fyrirtæki til að hafa samband við okkur í síma 821 8121 til að panta rauð nef. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF.

[ Bylgjan ]

Dagur rauða nefsins

Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku góðgerðasamtökunum Comic Relief, sem héldu fyrsta Dag rauða nefsins (e. Red Nose Day) árið 1988 í þeim tilgangi að safna fé til þurfandi barna í Afríku. Síðan þá hefur Dagur rauða nefsins verið haldinn annað hvert ár og hefur hann nú fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerðarviðburðum Bretlands. Dagurinn gengur út á að beita kímni og hlátri til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna í fátækari löndum þessa heims og fá fólk til að leggja sitt af mörkum.

Nánari upplýsingar um UNICEF veitir:

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í síma 552 6300 eða 863 3134.

[ Til Baka ]