Rauða nefið Heims foreldrar UNICEF Myndir Spurt & svarað Styrktaraðilar
Gerast Heimsforeldri
Fréttir


16.11.2006

BaggalúturGeisladiskurinn Brostu er kominn til landsins

Geisladiskur Baggalúts með laginu Brostu er kominn til landsins og er á leiðinni í verslanir. Baggalútsmenn sömdu lagið sérstaklega í tilefni af Degi rauða nefsins sem haldinn verður í fyrsta sinn hér á landi föstudaginn 1. desember. Geisladiskurinn kostar 990 kr. og allur ágóði rennur til verkefna Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem hjálpa bágstöddum börnum um allan heim. Ýmsir þekktir einstaklingar ljáðu laginu rödd sína. Þar má heyra í fegurðardrottningunni Unni Birnu, rokkurunum Magna og Bubba, stjórnmálamönnunum Siv og Steingrími Joð, íþróttaálfinum Magnúsi Scheving, útvarpsstjóranum Páli Magnússyni, viðskiptamógúlnum Hannesi Smárasyni og biskupi Íslands, Karli Sigurbjörnssyni. Við hvetjum landsmenn til að brosa og taka lagið... beint úr búðinni og í spilarann heima.

[ Horfa á myndbandið ]

Dagur rauða nefsins

Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku góðgerðasamtökunum Comic Relief, sem héldu fyrsta Dag rauða nefsins (e. Red Nose Day) árið 1988 í þeim tilgangi að safna fé til þurfandi barna í Afríku. Síðan þá hefur Dagur rauða nefsins verið haldinn annað hvert ár og hefur hann nú fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerðarviðburðum Bretlands. Dagurinn gengur út á að beita kímni og hlátri til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna í fátækari löndum þessa heims og fá fólk til að leggja sitt af mörkum.

Nánari upplýsingar um UNICEF veitir:

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í síma 552 6300 eða 863 3134.

[ Til Baka ]