

15.11.2009
Dagur rauða nefsins á netinu.
Í nóvember hefst söfnunarátak UNICEF Dagur rauða nefsins sem nær hámarki með sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 þann 4. desember. Það verður mikið um grín, glens og spaug í aðdraganda Dags rauða nefsins. Þá verður kímni og hlátri beitt til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna víða um heim. Ýmsir þjóðþekktir einstaklingar taka þátt í átakinu og leggja þannig góðu málefni lið.
Einstaklingar eru hvattir til að gerast heimsforeldrar, kaupa rauð trúðanef og gleðja vini og vandamenn með gríni og spé. Þá eru landsmenn hvattir til þess að horfa á Stöð 2 í opinni dagskrá að kvöldi 4. desember, þar sem einvalalið skemmtikrafta og grínista munu leggja sitt af mörkum til að skemmta landanum og um leið hvetja fólk til að bæta líf bágstaddra barna. Átakið hefst með formlegum hætti þann 20. nóvember og þá koma rauðu trúðanefin í búðir.
Hugmyndin að baki Degi rauða nefsins er að gleðjast og gleðja aðra, og þá sérstaklega að gleðja börn sem búa við sára neyð. Fólk fær tækifæri til þess að kynnast aðstæðum barna í Afríku og rétta fram hjálparhönd með því að gerast heimsforeldrar UNICEF.








