

13.11.2006
Rauðu trúðanefin komin í verslanir um allt land
Rauðu trúðanefin eru komin í verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar Essó um allt land. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF um allan heim... Þannig að ef þú kaupir nef gleður þú ekki aðeins þá sem sjá þig, heldur getur þú glatt börn í sárri neyð. Hvert nef kostar aðeins 500 krónur en reynt er að hafa verðið í lágmarki því bannað er að skilja útundan! Barnmargir foreldrar geta því keypt á allann krakkaskarann og sjálfa sig líka! Nefin eru þó fyrir alla, krakka með hár og karla með skalla. Vertu komin í stuð með rautt trúðanef fyrir 1. desember.
Dagur rauða nefsins
Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku góðgerðasamtökunum Comic Relief, sem héldu fyrsta Dag rauða nefsins (e. Red Nose Day) árið 1988 í þeim tilgangi að safna fé til þurfandi barna í Afríku. Síðan þá hefur Dagur rauða nefsins verið haldinn annað hvert ár og hefur hann nú fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerðarviðburðum Bretlands. Dagurinn gengur út á að beita kímni og hlátri til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna í fátækari löndum þessa heims og fá fólk til að leggja sitt af mörkum.








