Rauða nefið Heims foreldrar UNICEF Myndir Spurt & svarað Styrktaraðilar
Gerast Heimsforeldri
Fréttir


04.12.2006

BaggalúturDagur rauða nefsins gekk vonum framar

Landsmenn tóku vel í söfnunarátakið Dagur rauða nefsins sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, stóð fyrir 1. desember. Alls söfnuðust 88 milljónir króna og er þar með talinn ágóðinn af sölu rauðra trúðanefja, geisladiski Baggalúts „Brostu", söfnunarátaki Bylgjunnar og framlög þeirra heimsforeldra á ársgrundvelli sem skráðu sig meðan á átakinu stóð, auk 30 milljón króna framlags frá utanríkisráðuneytinu.

Alls skráðu sig 3950 heimsforeldrar meðan söfnunarátak UNICEF stóð yfir. Heimsforeldrar, sem styðja verkefni Barnahjálparinnar mánaðarlega, eru því orðnir 11.600 og á ársgrundvelli styrkja þeir börn í sárri neyð um 139 milljónir króna. Árangurinn fór fram úr björtustu vonum og söfnuðust tæpar 11 milljónir króna í gegnum sölu á rauðum trúðanefjum, geisladiski Baggalúts og með frjálsum framlögum. Utanríkisráðuneytið veitti 30 milljónir króna til landssöfnunarinnar og verður þeim varið til menntaverkefna UNICEF í Síerra Leóne.

Upphæðin sem safnaðist er hlutfallslega hærri þeirri sem safnaðist á Degi rauða nefsins í Bretlandi á síðasta ári. Enn á ný slær Ísland met ef miðað er við höfðatölu.

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, er ánægður með viðtökurnar. „Takmark okkar hjá UNICEF var að heimsforeldrar yrðu orðnir 10 þúsund fyrir lok sjónvarpssöfnunarinnar. Það tókst svo um munar og erum við mjög þakklát fyrir það. Landsmenn tóku þessu átaki opnum örmum og árangurinn skiptir miklu máli fyrir börn víða um heim sem lifa við erfiðar aðstæður. UNICEF nýtur stuðnings fjölda Íslendinga og það eru bágstödd börn sem munu njóta góðs af því," sagði Stefán.

Inntak Dags rauða nefsins er að hafa gaman af því að gefa og gleðja aðra. Fyrirtæki, skólar og stofnanir tóku Dag rauða nefsins fagnandi og brydduðu upp á ýmsu skemmtilegu í tengslum við hann. Það voru því margir sem gerðu sér glaðan dag saman og lögðu um leið góðu málefni lið.

Samstarfið við 365, Saga Film og alla þá listamenn sem komu að sjónvarpssöfnuninni á Degi rauða nefsins að kvöldi 1. desember gekk vel. UNICEF á Íslandi þakkar öllum þeim sem komu að deginum fyrir óeigingjarnt starf í þágu bágstaddra barna.

Framlögin

Auk fjölda þeirra heimsforeldra sem skráðu sig tók UNICEF við frjálsum framlögum og einnig var sala á rauðum nefjum framúrskarandi. Nákvæmt uppgjör vegna átaksins mun liggja fyrir í byrjun janúar.

Framlögin voru eftirfarandi:

  • Alls bættust 3950 heimsforeldrar í hópinn og fjárframlög á ársgrundvelli eru 47.400.000 miðað við 1000 króna meðalframlag á mánuði.
  • Fjárframlag frá íslenska ríkinu – 30 milljónir króna til menntaverkefnis í Síerra Leóne.
  • Söfnunarátak á Bylgjunni – 800 þúsund krónur.
  • Sala rauðra trúðanefja og geisladisksins „Brostu" – 7 milljónir króna (áætlað – ekki er unnt að fá nákvæmar sölutölur á þessu stigi).
  • Önnur frjáls framlög nema 3 milljónum króna.
  • Bakhjarlar styrkja rekstur UNICEF á Íslandi um 20 milljónir króna á þessu ári og verður hluta af því fé varið í framkvæmd Dags rauða nefsins. Ekkert af ofangreindu söfnunarfé mun því renna til reksturs vegna átaksins. 365, Saga Film, Icelandair og fleiri aðilar lögðu einnig sitt af mörkum.

Dagur rauða nefsins

Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku góðgerðasamtökunum Comic Relief, sem héldu fyrsta Dag rauða nefsins (e. Red Nose Day) árið 1988 í þeim tilgangi að safna fé til þurfandi barna í Afríku. Síðan þá hefur Dagur rauða nefsins verið haldinn annað hvert ár og hefur hann nú fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerðarviðburðum Bretlands. Dagurinn gengur út á að beita kímni og hlátri til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna í fátækari löndum þessa heims og fá fólk til að leggja sitt af mörkum.

Nánari upplýsingar um UNICEF veitir:

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í síma 552 6300 eða 863 3134.

[ Til Baka ]