

01.12.2006
Til hamingju með Dag rauða nefsins
Dagur rauða nefsins er í dag og af því tilefni hvetur Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, alla landsmenn til að gera góðverk og gefa með bros á vör. Hápunkturinn er ein viðamesta sjónvarpssöfnun Íslandssögunnar á Stöð 2 sem hefst um hálf átta og stendur fram til miðnættis í kvöld. Þar mun fjöldi skemmtikrafta taka höndum saman til að skemmta þjóðinni með gríni og glensi. Markmiðið með sjónvarpsútsendingunni er að safna heimsforeldrum sem styðja bágstödd börn um allan heim.
Allir leggjast á eitt!
Þetta er í fyrsta sinn sem Dagur rauða nefsins er haldinn á Íslandi. Sjónvarpað verður beint frá Nasa við Austurvöll í opinni dagskrá Stöðvar 2 og hefst útsendingin kl.19:40. Kynnar kvöldins verða hin krullhærðu Ilmur Kristjánsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson.
Dagskráin verður fjölbreytt og lifandi og skartar öllum helstu grínistum landsins. Þar taka m.a. höndum saman Spaugstofan, Búbbarnir, Stelpurnar, Tvíhöfðabræður og Sigtið auk fjölda annarra skemmtikrafta. Tónlistarfólkið lætur ekki sitt eftir ligga og munum við heyra í Lay Low, Bryndísi Ásmundsdóttur, Bubba og fleirum. Auk þess ætlar Ómar Ragnarsson að stýra lokalaginu sem allir ættu að kunna.
Margir þjóðþekktir einstaklingar munu sitja sveittir í símaverinu og taka niður skráningar heimsforeldra. Þar á meðal er fegursta kona heims 2005 Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, margfaldur kynþokkafyllsti maður Rásar 2 Logi Bergmann Eiðsson, markaskorarinn Björgólfur Takefusa, leikarinn og sjónvarpsstjarnan Felix Bergsson og hin þekkta tónlistarkona og fyrrum Grýla Ragga Gísla. Símaverinu stýrir Óskar Jónasson, en hann ætlar að skrá og telja heimsforeldrana með allsérstökum hætti.
Íslensk auglýsing með Roger Moore var sérstaklega gerð í tilefni dagsins og verður hún sýnd í þættinum.
Rauðir nebbakútar um allan bæ!
Til að koma landsmönnum í rétta gríngírinn fyrir söfnunina hafa rauð nef verið seld víðsvegar um landið auk geisladisks með laginu „Brostu“ eftir Baggalút sem samið var í tilefni dagsins. Allur ágóði sölunnar rennur óskertur til þurfandi barna í heiminum.
Dagur rauða nefsins
Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku góðgerðasamtökunum Comic Relief, sem héldu fyrsta Dag rauða nefsins (e. Red Nose Day) árið 1988 í þeim tilgangi að safna fé til þurfandi barna í Afríku. Síðan þá hefur Dagur rauða nefsins verið haldinn annað hvert ár og hefur hann nú fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerðarviðburðum Bretlands. Dagurinn gengur út á að beita kímni og hlátri til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna í fátækari löndum þessa heims og fá fólk til að leggja sitt af mörkum.








