Rauða nefið Heims foreldrar UNICEF Myndir Spurt & svarað Styrktaraðilar
Gerast Heimsforeldri
Fréttir


09.11.2006

Fimm fyrirtæki með rautt nef

Á fimmtudaginn skrifa fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi til næstu þriggja ára. Samningurinn hljóðar upp á 60 milljónir króna. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.

UNICEF á Íslandi býður til blaðamannafundar á morgun, fimmtudag kl.10:00, á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42. Þar munu fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins; Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip, skrifa undir styrktarsamning við UNICEF. Með samningnum styrkja fyrirtækin stoðir Barnahjálparinnar á Íslandi og gera samtökunum kleift að auka fjáröflunarstarf sitt til muna. Með þessu samstarfi sýna fyrirtækin frumkvæði og styrk sem mun stuðla að bættum heimi fyrir börn.

Samningurinn markar upphafið að þriggja ára samstarfi, en fyrsta verkefni UNICEF og bakhjarlanna verður að halda Dag rauða nefsins hér á landi í fyrsta sinn. Um er að ræða stærsta söfnunarátak UNICEF til þessa, þar sem landsmenn verða hvattir til að skrá sig sem heimsforeldra og kaupa rauð trúðanef til styrktar verkefnum UNICEF um allan heim. Lag Baggalúts Brostu, sem þegar er farið í spilun, var einnig samið sérstaklega fyrir söfnunarátakið.

Hugmyndin að baki Degi rauða nefsins er að gleðjast og gleðja aðra, og þá sérstaklega að gleðja börn í Afríku sem búa við sára neyð. Margir þjóðþekktir einstaklingar, grínistar, leikarar og tónlistarfólk koma að átakinu með ýmsum hætti og leggja þannig sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn fátækt.

Nú á fimmtudaginn verður heimasíða átaksins, www.rauttnef.is, opnuð. Þar verður hægt að nálgast allar upplýsingar um Dag rauða nefsins og fylgjast með fréttum af átakinu.

Dagur rauða nefsins

Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku góðgerðasamtökunum Comic Relief, sem héldu fyrsta Dag rauða nefsins (e. Red Nose Day) árið 1988 í þeim tilgangi að safna fé til þurfandi barna í Afríku. Síðan þá hefur Dagur rauða nefsins verið haldinn annað hvert ár og hefur hann nú fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerðarviðburðum Bretlands. Dagurinn gengur út á að beita kímni og hlátri til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna í fátækari löndum þessa heims og fá fólk til að leggja sitt af mörkum.

Nánari upplýsingar um UNICEF veitir:

Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í síma 552 6300 eða 863 3134.

[ Til Baka ]