
Baggalútur brosir
Nýtt lag Baggalúts, Brostu, er sérstaklega samið fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðina, UNICEF, í tilefni af Degi rauða nefsins sem haldinn verður í fyrsta skipti hér á landi föstudaginn 1. desember.
Diskurinn kostar 990 krónur og fæst í öllum helstu plötubúðum landsins eftir miðjan nóvember.
UNICEF þakkar Baggalúti og þeim þjóðþekktu einstaklingum sem að laginu koma kærlega fyrir stuðninginn og hvetur alla til að brosa og taka lagið... beint úr búðinni og með sér heim.
Texti lagsins:
ertu óttalega stúrinn?
ertu gegnsýrður af sorg og sút?
ertu lítill fýlusgrágur
sem þorir varla út - með mallakút í hnút
situr aleinn útí horni
og ygglir þig - ef aðrir skemmta sér
viltu kafna úr eigin fýlu?
- samer mér!
en þú veist fullvel
þú verður að hrista þetta af þér
það sakar ekki
Það skaðar ekki
skelfing ertu alltaf neikvæð
ósköp ertu eitthvað þurr og þver
lítil úrill fýlustelpa
sem iðulega er - með allt á hornum sér
situr alein útí horni
sannfærð um að allt sé illa meint
góða hættu þessu væli
alltaf hreint
og vittu til
það er aldrei of seint
brostu - í fréttasetti (Páll Magnússon)
brostu - á harðaspretti (Magnús Scheving)
brostu - úr ræðustóli (Steingrímur J. Sigfússon)
brostu - á mótorhljóli (Siv Friðleifsdóttir)
brostu - í gegnum tárin (Unnur Birna)
brostu - í bissnissfári (Hannes Smárason)
brostu - í Draumalandi (Andri Snær)
brostu - í metalbandi (Magni)
brostu - það er gott að gefa (Karl Sigurbjörnsson)
brostu - fram í fulla hnefa (Bubbi)









