

15.11.2009
Dagur rauða nefsins á netinu.
Í nóvember hefst söfnunarátak UNICEF Dagur rauða nefsins sem nær hámarki með sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 þann 4. desember.
Það verður mikið um grín, glens og spaug í aðdraganda Dags rauða nefsins. Þá verður kímni og hlátri beitt til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna víða um heim. Ýmsir þjóðþekktir einstaklingar taka þátt í átakinu og leggja þannig góðu málefni lið.
[ Skoða frétt ]
07.12.2006
Dagur rauða nefsins á netinu.
Hægt er að horfa á söfnunarþáttinn sem sýndur var á Stöð2 föstudaginn 1. desember í tilefni af Degi rauða nefsins á www.visir.is. Íslendingar tóku vel í söfnunarátakið og skráðu sig 3950 sem heimsforeldrar. Heimsforeldrar eru því nú um 11600 talsins. Við færum sérstakar þakkir til allra landsmanna sem tóku þátt í deginum með UNICEF og skemmtikröftum kvöldsins.
[ Skoða frétt ]
04.12.2006
Dagur rauða nefsins gekk vonum framar
Alls skráðu sig 3950 heimsforeldrar meðan söfnunarátak UNICEF stóð yfir. Heimsforeldrar, sem styðja verkefni Barnahjálparinnar mánaðarlega, eru því orðnir 11.600 og á ársgrundvelli styrkja þeir börn í sárri neyð um 139 milljónir króna. Árangurinn fór fram úr björtustu vonum og söfnuðust tæpar 11 milljónir króna í gegnum sölu á rauðum trúðanefjum, geisladiski Baggalúts og með frjálsum framlögum. Utanríkisráðuneytið veitti 30 milljónir króna til landssöfnunarinnar og verður þeim varið til menntaverkefna UNICEF í Síerra Leóne.
[ Skoða frétt ]
01.12.2006
Til hamingju með Dag rauða nefsins
Dagur rauða nefsins er í dag og af því tilefni hvetur Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, alla landsmenn til að gera góðverk og gefa með bros á vör. Hápunkturinn er ein viðamesta sjónvarpssöfnun Íslandssögunnar á Stöð 2 sem hefst um hálf átta og stendur fram til miðnættis í kvöld. Þar mun fjöldi skemmtikrafta taka höndum saman til að skemmta þjóðinni með gríni og glensi. Markmiðið með sjónvarpsútsendingunni er að safna heimsforeldrum sem styðja bágstödd börn um allan heim.
[ Skoða frétt ]
30.11.2006
Bylgjan brosir með UNICEF
Bylgjan ætlar að brosa með UNICEF á Degi rauða nefsins 1. desember og verður með brandara-átak fyrir fyrirtæki og vinnustaði. Þetta er tækifæri fyrirtækja til að leggja átakinu lið og styrkja bágstödd börn víða um heim. Söfunin á Bylgjunni gengur þannig fyrir sig að einstaklingar og fyrirtæki geta keypt brandara á Bylgjunni föstudaginn 1.desember og mun allt andvirði renna til barnahjálpar UNICEF. Bylgjan og UNICEF hvetja alla til að taka þátt og lyfta vinnuandanum í mesta skammdeginu um leið og góðu málefni er lagt lið.
[ Skoða frétt ]
30.11.2006
Fyrsti bekkur Nesskóla býr til rauð nef
Fyrsti bekkir Nesskóla Neskaupstað ákváðu í tilefni Dags rauða nefsins að fræðast um hvað dagurinn gengi út á. Nefnilega að gera góðverk og gefa til þeirra sem minna mega sín í þessum heimi. Börnin í Nesskóla fræddust um börnin í Afríku, skoðuðu myndir og kennararnir sögðu þeim frá því hvers vegna þessi dagur væri haldinn. Í lok dagsins bjuggu þau til nef til að minnast hans og krakkanna sem eiga bágt. Með meðfylgjandi mynd vill fyrsti bekkur Nesskóla „hvetja alla Norðfirðinga að styrkja þetta frábæra málefni."
[ Skoða frétt ]
29.11.2006
Fyrirtæki kaupa rauð nef
Fjölmörg fyrirtæki hafa tekið vel í átakið og kaupa rauð nef í hundraða tali á starfsmenn sína. Það ætti því að vera glatt á hjalla á mörgum vinnustöðum á föstudaginn eða í jólagleðinni. Við hvetjum enn fleiri fyrirtæki til að hafa samband við okkur í síma 821 8121 til að panta rauð nef. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF.
27.11.2006
Útilíf með skemmtilegan leik
Útilíf skorar á viðskiptavini sína að ganga með rauð nef um búðina. Í staðinn fá þeir 5% afslátt af öllum vörum. Þetta er skemmtilegur leikur svona í tilefni Dags rauða nefsins sem er á morgun og tilvalið fyrir fólk í jólainnkaupum að næla sér í afslátt. Nú getur fólk einnig keypt sér rauð nef í verslunum Útilífs og þannig lagt sitt af mörkum til verkefna UNICEF sem vinnum með bágstöddum börnum um allan heim. Útilíf er á þremur stöðum; í Glæsibæ, Smáralind og Kringlunni.
20.11.2006
Brostu í dag!
Geisladiskur Baggalúts, með laginu Brostu, kemur í verslanir Skífunnar, BT og Hagkaupa í dag og kostar aðeins 990 krónur. Baggalútsmenn sömdu lagið sérstaklega fyrir UNICEF í tilefni af Degi rauða nefsins og rennur allur ágóði sölunnar til verkefna Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem miða öll að því að hjálpa bágstöddum börnum um allan heim.
Ýmsir þekktir einstaklingar ljáðu laginu rödd sína. Þar má heyra í fegurðardrottningunni Unni Birnu, rokkurunum Magna og Bubba, stjórnmálamönnunum Siv Friðleifs og Steingrími Joð, Íþróttaálfinum Magnúsi Scheving, útvarpsstjóranum Páli Magnússyni, viðskiptamógúlnum Hannesi Smárasyni og biskupi Íslands, Karli Sigurbjörnssyni.
17.11.2006
Vilt þú vera gestur í sjónvarpssal?
Nú er byrjað að taka við áhugasömu fólki sem vilja vera gestir í sjónvarpssal á Degi rauða nefsins 1. desember. Ef þú hefur áhuga hvetjum við þig til að hafa samband við Helenu hjá Saga Film í síma 515 4692 eða senda póst á helena@sagafilm.is fyrir 26. nóvember. Þátturinn er sendur út beint frá skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll og sýndur í opinni dagskrá á Stöð2. Vertu vitni að því þegar einvalalið íslenskra grínista mun leggja sitt af mörkum og skemmta landanum. Við lofum miklu stuði í salnum!
[ Sækja um að vera í sjónvarpssal ]
16.11.2006
Geisladiskurinn Brostu er kominn til landsins
Geisladiskur Baggalúts með laginu Brostu er kominn til landsins og er á leiðinni í verslanir. Baggalútsmenn sömdu lagið sérstaklega í tilefni af Degi rauða nefsins sem haldinn verður í fyrsta sinn hér á landi föstudaginn 1. desember. Geisladiskurinn kostar 990 kr. og allur ágóði rennur til verkefna Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem hjálpa bágstöddum börnum um allan heim.
[ Skoða frétt ] - [ Horfa á myndbandið ]
14.11.2006
Rauðu trúðanefin komin í sölu!
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, ásamt allri borgarstjórn, lögðu sitt af mörkum í dag og keyptu rauð trúðanef. Með þessu opnaði borgarstjórn formlega söluna á rauðu nefjunum. Rauðu nefin koma í allar verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar ESSO í dag og kosta 500 krónur. Allur ágóði af sölunni rennur til verkefna UNICEF sem vinnur með bágstöddum börnum um allan heim.
13.11.2006
Rauðu trúðanefin komin í verslanir um allt land
Rauðu trúðanefin eru komin í verslanir Bónuss, 10-11, útibú Glitnis og á bensínstöðvar Essó um allt land. Allur ágóði af sölu nefjanna rennur til verkefna UNICEF um allan heim... Þannig að ef þú kaupir nef gleður þú ekki aðeins þá sem sjá þig, heldur getur þú glatt börn í sárri neyð. Hvert nef kostar aðeins 500 krónur en reynt er að hafa verðið í lágmarki því bannað er að skilja útundan! Barnmargir foreldrar geta því keypt á allann krakkaskarann og sjálfa sig líka! Nefin eru þó fyrir alla, krakka með hár og karla með skalla. Vertu komin í stuð með rautt trúðanef fyrir 1. desember.
[ Skoða frétt ]
09.11.2006
Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar UNICEF ...
Í dag skrifuðu fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi. Samningarnir hljóða upp á 60 milljónir króna og ná til næstu þriggja ára. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.
[ Skoða frétt ]
09.11.2006
Fimm fyrirtæki með rautt nef
Á fimmtudaginn skrifa fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi til næstu þriggja ára. Samningurinn hljóðar upp á 60 milljónir króna. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.
[ Skoða frétt ]








